22. janúar, 2020

Ársskýrsla Grólindar: Fyrsta stöðumat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins

22.01.2020. Ársskýrsla Grólindar: Fyrsta stöðumat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins

Verið er að leggja lokahönd á fyrsta stöðumat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins.  Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu verkefnisins Grólind. Stöðumatið byggir á rofkortlagningu RALA og Landgræðslunnar og vistgerðaflokkun Náttúrufræðistofnunar Íslands. Stöðumatið verður kynnt opinberlega fyrripart árs 2020. Til að hægt sé að tengja landnýtingu við ástand auðlindanna er nauðsynlegt að vita hvernig og hversu mikið land er nýtt. Verið er að kortleggja mörk úthaga og afrétta og núverandi nýtingu þeirra til sauðfjárbeitar. Þessar upplýsingar verða kynntar samhliða stöðumatinu. Í framtíðinni verður kortlagt hvernig annar búpeningur en sauðfé nýtir landið. Um leið verður safnað upplýsingum um aðra landnýtingu.

 

Verkefninu Grólind er ætlað að þróa einfalda vísa sem hægt er að nota til að meta sjálfbærni landnýtingarinnar. Forsenda fyrir þróun slíkra vísa er að skilja hvaða áhrif mismunandi landnýting hefur á uppbyggingu og virkni vistkerfa. Í verkefninu er stefnt að því að auka þennan skilning með því að: (a) vakta gróður- og jarðvegsauðlindir, (b) safna saman þeirri þekkingu sem þegar er til staðar og (c) auka þekkingu með rannsóknum. Lítil áhersla verður lögð á rannsóknaliðinn á fyrstu stigum að frátaldri rannsókn sem hófst á síðasta ári, þar sem notuð eru staðsetningartæki til að kanna beitaratferli sauðfjár í sumarhögum og rannsókn sem snýr að því að skilja samspil loftslagshlýnunar og beitar á íslensk vistkerfi.

 

Eitt af meginverkefnum GróLindar er að setja upp vöktun á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins. Sumarið 2019 hófst vöktunin þegar 76 reitir voru lagðir út víðsvegar um landið, en stefnt er að því að setja upp rösklega 1000 vöktunarreiti á næstu fjórum árum. Samhliða er hafin þróun á því hvernig nýta megi mælingar á jörðu niðri til að meta ástand lands út frá gervitunglamyndum.

Í ársskýrslunni segir að mikil áhersla  hafi verið lögð á að vinna verkefnið í góðu samstarfi við landnotendur, vísindasamfélagið og opinberar stofnanir. Á vormánuðum 2019 var verkefnið kynnt á 17 mismunandi stöðum um allt land. Fundirnir tókust vel. Að auki hefur verkefnið verið kynnt með fyrirlestrum, í fjölmiðlum og á fundum.

 

Landgræðslan

Starfsstöðvar

Starfsmenn

Um okkur

Rafrænir reikningar

Skýrslur

Umsóknir

Landupplýsingar

Landbótasjóður

Gæðastýring í sauðsfjárrækt

Bændur græða landið

Varnir gegn landbroti

Endurheimt votlendis

Hagagæði

GróLind

Lagaumhverfi

Auglýsingar

Aðalskrifstofa | Gunnarsholti | 851 Hella | Sími 488-3000 | Netfang land@land.is | Rafrænir reikningar | Kt: 710169-3659

Efnisorð:

Þú gætir haft áhuga á….

Jafnrétti er ákvörðun

Jafnrétti er ákvörðun

Landgræðslan tók á móti Jafnvægisvoginni, viðurkenningu FKA við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 12. október

Máttur til mýranna!

Máttur til mýranna!

Afar mikilvæg alhiða votlendisráðstefna var haldin í Antwerpen 19. – 21. september síðast liðinn. Lögð var fram sameiginleg yfirlýsing um mikilvægi votlendis hvað varðar ýmsar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir sem Landgræðslan hefur lagt stuðning við.