Landgræðslan
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 02. desember 2008 08:56 Þriðjudagur, 14. október 2008 00:00
Skaftárhlaup eyðileggur
Ljóst er af myndum sem teknar hafa verið að Skaftárhlaupið hefur valdið miklum skaða á gróðurlendi.
Skaftá ber með sér ógrynni af jökulleir og sandi. Þegar áin flæðir yfir bakka sína situr eftir mikið magn framburðarefna sem kaffærir gróður. Síðan fýkur af þessum svæðum á aðliggjandi gróðurlendi og sverfur gróður og kaffærir stundum varanlega.
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 02. desember 2008 08:16 Miðvikudagur, 08. október 2008 00:00
Að taka náttúruna með í reikninginn - Ráðstefna 10. október 2008
Haldin á Háskólatorgi við Háskóla Íslands.Föstudaginn 10. október n.k. boðar Orkuveita Reykjavíkur, ásamt samstarfsaðilum, til ráðstefnu um endurheimt staðargróðurs og frágang á gróðri og landslagi eftir rask vegna framkvæmda.
Ráðstefnan er hugsuð sem vettvangur fyrir framkvæmdaraðila, sérfræðinga og eftirlitsaðila til þess að ræða lausnir á þessu sviði. Hún er þáttur í undirbúningi fyrir gerð verklagsreglna um umgengni og frágang vegna rasks við framkvæmdir, sem vonandi geta nýst sem flestum aðilum.
Forseti Íslands setur ráðstefnuna kl. 8:30
Sjá nánar á vef Orkuveitunnar
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 02. desember 2008 08:35 Mánudagur, 06. október 2008 13:22
Landgræðsluskóla að ljúka
Landgræðsluskólanum Land Restoration Training Programme er senn að ljúka. Hann hefur verið starfandi síðustu sex mánuðina. Nemendur eru sex talsins og koma frá Mongólíu (1), Namibíu (3) og Úganda (2).
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 10. desember 2008 08:49 Fimmtudagur, 02. október 2008 09:38

Landgræðsluvörðurinn Sveinn í Krossdal sjötugur
Sveinn Þórarinsson er sjötugur í dag, 29. september. Hann fæddist í Krossdal árið 1938. Sveinn hóf störf við landgræðslu vorið 1954 hjá föður sínum, Þórarni Jóhannessyni landgræðsluverði, þegar hafist var handa við að beisla sandinn sem kom ofan af Hólsfjöllum og æddi niður í byggðina í Öxarfirði.Bændur sem græða landið
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. október 2008 13:22 Föstudagur, 26. september 2008 10:35
Lúðvig Lárusson sendi Landgræðslunni þennan fróðlega pistil um uppgræðslu mela á Skógarströnd.Landgræðsla hafin á Breiðabólsstað á Skógarströnd með „Bændur græða landið“ sumarið 2008.
Jörðin er eins og heiti svæðisins gefur til kynna þokkalega vel gróin víða en engu að síður hafa orðið gróðurskemmdir og myndast melar með mikilli beit á stórum svæðum sem eru kjörin til uppræktunar.
Fleiri greinar...
Síða 44 af 46








