Landgræðslan

Roger Crofts

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 27. júlí 2010 11:49 Þriðjudagur, 27. júlí 2010 11:37

Margir góðir erlendir gestir heimsækja Landgræðsluna á hverju ári. Þeirra á meðal er Roger Crofts sem nú er í sinni tuttugustu heimsókn á Íslandi.

 

Hann hefur unnið með Landgræðslu ríkisins, Náttúruvernd ríkisins (nú Umhverfisstofnun), Landvernd, Vatnajökulsþjóðgarði og umhverfisráðuneytinu og veitt margvíslega ráðgjöf á sviði umhverfismála. Hann hefur flutt hér fjölda fyrirlestra fyrir almenning og á ráðstefnum á vegum Landgræðslunnar. Ennfremur ritað greinar í dagblöð og tímarit hér á landi.

 

Roger ritstýrir enskri útgáfu á Sáðmönnum sandanna sem nú er unnið að, eftir Friðrik G. Olgeirsson, en Róbert Mellk þýðir bókina á ensku. Stefnt er að bókin komi út síðar á þessu ári.

 

Roger Crofts var í 10 ár framkvæmdastjóri Scottish Natural Herritage (SNH), stofnun sem fer með yfirstjórn náttúruverndar í Skotlandi, auk þess sem hann hefur sinnt margháttuðum ráðgjafarstörfum á sviði umhverfismála fyrir stofnanir og ráðuneyti víðs vegar um heiminn.

 

Roger Crofts. Ljósmynd: Jón Ragnar Björnsson.

 

Sáð og dreift í þúsund hektara

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Miðvikudagur, 28. júlí 2010 00:00

solheimasandurSnemmsumars lagði Landgræðslan fram aðgerðaáætlun varðandi heftingu öskufoks í nágrenni Eyjafjallajökuls. Var ætlunin að hefta uppfok ösku frá stórum svæðum í byggð með styrkingu gróðurs og sáningu á gróðurlausum svæðum.

 

 

Lesa nánar: Sáð og dreift í þúsund hektara

 

Landgræðsla með skógrækt

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Fimmtudagur, 22. júlí 2010 11:11

 

Landgræðsluaðgerðir á Hólasandi héldu áfram af fullum krafti í sumar. Plantað var 50.250 trjáplöntum í sandinn, þar af 36.850 birkiplöntum og 13.400 lerkiplöntum.
 
 

Lesa nánar: Landgræðsla með skógrækt

   

Landeyjahöfn tekin í notkun

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. júlí 2010 20:27 Þriðjudagur, 20. júlí 2010 20:06

Í dag var Landeyjahöfn tekin í notkun með veglegri vígsluhátíð.

 

Þetta samgöngumannvirki mun vafalaust hafa mikil áhrif á mannlífið í Vestmannaeyjum og á "meginlandinu". Verkefnið var flókið og margslungið. Þar á meðal þurfti að tryggja sem best leiðina frá höfninni yfir á þjóðveg 1 við Markarfljótsbrú, en sandfok er oft mikið vandamál á Landeyjasandi. Siglingamálastofnun fékk Landgræðsluna til að græða upp mikið svæði á sandinum til að tryggja umferð sem best um veginn.

 

Nánar segir af hlut Landgræðslunnar í þessu verkefni hérna

 

Landeyjahöfn vígð. Ljósmynd: Sveinn Runólfsson.

 

Lúpínueyðing

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Síðast uppfært: Föstudagur, 23. júlí 2010 11:01 Föstudagur, 16. júlí 2010 13:33

Vaskir norðanmenn á lúpínuveiðum. Ljósmynd: Stefán Skaftason.Nokkrir starfsmenn Landgræðslunnar á Húsavík hafa að undanförnu eytt lúpínu  við Sandvatn í Mývatnssveit. Er það gert til þess að

 

 

 

 

Lesa nánar: Lúpínueyðing

   

Síða 4 af 46