Landgræðslan

Norræn vinnustofa um vistheimt

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Síðast uppfært: Föstudagur, 20. ágúst 2010 12:45 Föstudagur, 20. ágúst 2010 12:33

Dagana 16.-20. ágúst var haldin norræn vinnustofa um vistheimt á Norðurlöndum. Þátttakendur voru frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Þessi fundur er liður í verkefninu ReNo, sem fjallar um

Lesa nánar: Norræn vinnustofa um vistheimt

 

Melskurður í Þorlákshöfn

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 08:29

Melskurður er hafinn á landgræðslusvæðinu í Þorlákshöfn. Til uppgræðslu var melgresi sáð í sandinn en fyrir tveimur árum var hænsnaskítur borinn á svæðið. Það bar afar góða raun. Melgresið er nú farið að skila mikilli uppskeru af góðu melfræi.

 

Í ár var hægt að uppskera snemma enda hefur verið einmunatíð.

 

Núna eru sex vélar frá Landgræðslunni í melskurði í Þorlákshöfn. Að uppskeru í Þorlákshöfn lokinni munu vélarnar verða sendar í Landeyjarnar og á Mýrdalssand til uppskerustarfa.  

 

Það er mikilvægt fyrir Landgræðsluna að fá fræ af melgresi til áframhaldandi landgræðslustarfa. Melgresi er mikið notað í uppgræðslu þegar um erfið sandsvæði er að ræða, svo sem við Bakkafjöru. 
 
 

melskurdur

 

 

Eyðing lúpínu á Þórsmerkursvæðinu

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Síðast uppfært: Föstudagur, 06. ágúst 2010 11:52 Föstudagur, 06. ágúst 2010 11:19

Starfsfólk Landgræðslunnar við rannsóknir á eyðingu lúpínu. Ljósmynd: Jón Ragnar Björnsson.

 

Vegna fréttar frá Skógrækt ríkisins sem birt var á mbl.is og á vefsíðu Skógræktar ríkisins miðvikudaginn 4. ágúst um eyðingu lúpínu með eitri vill Landgræðslan benda á

Lesa nánar: Eyðing lúpínu á Þórsmerkursvæðinu

   

Nemendur Landgræðsluháskóla Sameinuðu þjóðanna í Hekluskógum

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 10:39 Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 10:10

Nemendur Landgræðsluháskólans fóru nýverið í kynnisferð um Hekluskóga í fylgd með Guðrúnu Stefánsdóttur hjá Landgræðslunni og Friðþóri Sófusi Sigurmundssyni, starfsmanni Hekluskóga.

 

 

 

 

Lesa nánar: Nemendur Landgræðsluháskóla Sameinuðu þjóðanna í Hekluskógum

 

Alþjóðavæðing landgræðslustarfsins

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 29. júlí 2010 10:55 Fimmtudagur, 29. júlí 2010 10:44

Landgræðslan er í formlegu samstarfi við nokkra erlenda háskóla í Bandanríkjunum og Ástralíu. Ennfremur við rannsóknastofnanir ESB. Fjöldi erlendra vísindamanna kemur því í skiptiheimsóknir árlega í Gunnarsholt.

 

Þessa dagana er Dr. Bill Ravlin , forstöðumaður Ohio Agricultural Research and Development Center í heimsókn hjá Landgræðslunni. Heimsókn hans er liður í formlegu samstarfi Landgræðslunnar og Ohio State University , OSU í Bandaríkjunum. Landbúnaðarháskóli Íslands er einnig samstarfsaðili. Allstór hópur stúdenta frá OSU kemur árlega í kynnisferðir til Íslands auk þess sem nemendur háskólans dvelja hjá Landgræðslunni við rannsóknastörf.

 

Samstarfið felst ekki hvað síst í rannsóknum á bindingu kolefnis í jarðvegi og sérfæðingar Landgræðslunnar hafa verið í námi og þjálfun á því sviði við háskólann á liðnum árum.

 

 

Bill Ravlin. Ljósmynd Jón Ragnar Björnsson.

   

Síða 3 af 46