Landgræðslan
Girðingar og uppgræðsla
Föstudagur, 09. júlí 2010 08:51
Sumarið er tími mikils annríkis hjá Landgræðslunni og sem dæmi eru talsverðar framkvæmdir á vegum héraðsseturs Landgræðslunnar á Húsavík. Fyrir utan hefðbundin verkefni eins og ...
Alþjóðavæðing landgræðslustarfsins
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 29. júlí 2010 10:55 Skrifað af: Jón Ragnar Björnsson Fimmtudagur, 29. júlí 2010 10:44
Landgræðslan er í formlegu samstarfi við nokkra erlenda háskóla í Bandanríkjunum og Ástralíu. Ennfremur við rannsóknastofnanir ESB. Fjöldi erlendra vísindamanna kemur því í skiptiheimsóknir árlega í Gunnarsholt.
Þessa dagana er Dr. Bill Ravlin , forstöðumaður Ohio Agricultural Research and Development Center í heimsókn hjá Landgræðslunni. Heimsókn hans er liður í formlegu samstarfi Landgræðslunnar og Ohio State University , OSU í Bandaríkjunum. Landbúnaðarháskóli Íslands er einnig samstarfsaðili. Allstór hópur stúdenta frá OSU kemur árlega í kynnisferðir til Íslands auk þess sem nemendur háskólans dvelja hjá Landgræðslunni við rannsóknastörf.
Samstarfið felst ekki hvað síst í rannsóknum á bindingu kolefnis í jarðvegi og sérfæðingar Landgræðslunnar hafa verið í námi og þjálfun á því sviði við háskólann á liðnum árum.

Aðalfundur Landgræðslufélags Öræfinga
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 22. júní 2010 12:39 Föstudagur, 18. júní 2010 08:04

Elsta landgræðslufélagið, Landgræðslufélags Öræfinga, hélt aðalfund sinn 9. þ.m. Í skýrslu formanns, Arnar Bergssonar, kom fram að megin áhersla hafi verið lögð á uppgræðslu í svokölluðum Skerjum.
Roger Crofts
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 27. júlí 2010 11:49 Skrifað af: Jón Ragnar Björnsson Þriðjudagur, 27. júlí 2010 11:37
Margir góðir erlendir gestir heimsækja Landgræðsluna á hverju ári. Þeirra á meðal er Roger Crofts sem nú er í sinni tuttugustu heimsókn á Íslandi.
Hann hefur unnið með Landgræðslu ríkisins, Náttúruvernd ríkisins (nú Umhverfisstofnun), Landvernd, Vatnajökulsþjóðgarði og umhverfisráðuneytinu og veitt margvíslega ráðgjöf á sviði umhverfismála. Hann hefur flutt hér fjölda fyrirlestra fyrir almenning og á ráðstefnum á vegum Landgræðslunnar. Ennfremur ritað greinar í dagblöð og tímarit hér á landi.
Roger ritstýrir enskri útgáfu á Sáðmönnum sandanna sem nú er unnið að, eftir Friðrik G. Olgeirsson, en Róbert Mellk þýðir bókina á ensku. Stefnt er að bókin komi út síðar á þessu ári.
Roger Crofts var í 10 ár framkvæmdastjóri Scottish Natural Herritage (SNH), stofnun sem fer með yfirstjórn náttúruverndar í Skotlandi, auk þess sem hann hefur sinnt margháttuðum ráðgjafarstörfum á sviði umhverfismála fyrir stofnanir og ráðuneyti víðs vegar um heiminn.

Sáð og dreift í þúsund hektara
Miðvikudagur, 28. júlí 2010 00:00
Snemmsumars lagði Landgræðslan fram aðgerðaáætlun varðandi heftingu öskufoks í nágrenni Eyjafjallajökuls. Var ætlunin að hefta uppfok ösku frá stórum svæðum í byggð með styrkingu gróðurs og sáningu á gróðurlausum svæðum.
Fleiri greinar...
Síða 1 af 44








