Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Uppgræðsla

Af hverju að endurheimta landgæði
Margt ávinnst með endurheimt landgæða. Jarðvegur myndast á ný, landið verður frjósamara, vatnsmiðlun batna, ástand og ásýnd þess batnar og ónýtanlegt land verður nýtanlegt á nýjan leik.  Annað mjög mikilvægt sem vinnst með endurheimt landgæða er að við uppgræðslu verður landið þróttmeira en áður og stendur þannig betur að vígi gegn náttúrulegu raski eins og öskufalli vegna eldgosa.Landgræðslan veitir faglega aðstoð og ráðgjöf við uppgræðsluverkefni og endurheimt landgæða og leggur oft til hluta kostnaðar við framkvæmdir. Beitt er ýmsum aðferðum við uppgræðslu, s.s. friðun, áburðargjöf, sáningu og útplöntun.

Mismunandi aðferðafræði
Við uppgræðslustarfið er beitt mörgum aðferðum.  Hvaða aðferðir eru notaðar hverju sinni er háð aðstæðum á hverjum stað og hvert markmið aðgerðanna er. Mikilvægt er þó að hafa í huga að landgræðsluaðgerðir sameina oft á tíðum mörg markmið samtímis s.s. stöðvun og fyrirbyggingu á gróður- og jarðvegseyðingu, endurheimt gróðurs og jarðvegs og um leið stækkun á nytjalandi. Þar sem land er gróðurvana eða gróður á undanhaldi t.d. vegna sandfoks er sáð melgresi og ýmsum öðrum grastegundum, sumstaðar lúpínu eða gróðursettar trjáplöntur eftir því sem best hentar á hverjum stað og eftir markmiðum uppgræðslustarfsins. Einnig eru í nokkrum tilvikum settar upp sandgildrur, t.d. sandgirðingar, heyrúllur eða baggar til að stöðva sandfok. Oft er fleiri en einni aðferð beitt samtímis á hverjum stað.

Sé markmiðið að byggja upp beitiland þá er oft nægjanlegt að bera eingöngu á lága skammta af tilbúnum áburði og laða þannig fram staðbundnar tegundir. Á gróðursnauðum svæðum getur hins vegar verið nauðsynlegt að nota fræ og tilbúinn áburð til að flýta fyrir framgangi uppgræðslunnar. Uppgræðsla án fræs hefur þann kost að þegar áburðardreifingu er hætt þá hverfa plönturnar síður úr landinu líkt og hætta er á þegar sáð er áburðarfrekum tegundum. Hversu oft og hversu lengi þarf að bera á hvert svæði verður að meta hverju sinni.

Þar sem markmið uppgræðsluaðgerða er að bæta gróðurrýr svæði s.s. til nytjaskógræktar eða endurheimt náttúrulegs skóg- eða kjarrlendis, er meðal annars hægt að sá birkifræi, nota stiklinga af loðvíði eða gulvíði sem klippa má í nágrenni uppgræðslusvæðisins og einnig er möguleiki að nota ýmsar belgjurtir.

Uppgræðsla-landbætur í úthaga.