Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Landgræðsluskólinn  - vefsíða: www.unulrt.is

Landgræðsluskólinn eða "Land Restoration Training Program" er þróunarverkefni sem unnið er í samvinnu Landgræðslunnar og Landbúnaðarháskóla Íslands.

Markmið verkefnisins er að bjóða upp á sérhæfða sex mánaða þjálfun í landgræðslufræðum fyrir fagfólk í landgræðslu frá þróunarlöndunum. Verkefninu lýkur árið 2009, og ef vel tekst til, mun skólinn halda áfram og verða hluti af Háskóla Sameinuðu Þjóðanna eins og Jarðhitaskólinn og Sjávarútvegsskólinn, sem báðir eru starfræktir hér á landi.

Nemendur Landgræðsluskólans koma frá ýmsum þróunarlöndum sem eiga það sammerkt að glíma við mikla gróður- og jarðvegseyðingu.

Þeir eru allir háskólamenntaðir og vinna við landgræðslu í víðum skilningi í sínum heimalöndum, og koma til Íslands til að fá meiri færni í starfi og víkka sjóndeildarhringinn.

Í þessari starfsþjálfun felst bæði bóklegt og verklegt nám í landgræðslu, vistfræði, og jarðvegsfræði, en einnig er mikil áhersla lögð á að auka færni nemenda í að virkja fólk til samstarfs t.d. um bætta landnýtingu.

 

Á myndinni eru f.v.: Hafdís Hanna Ægisdóttir (LbhÍ), Magnús H. Jóhannsson (Landgræðslan), Rabanus Shoopala (Namibía), Inga Svala Jónsdóttir (LbhÍ), Taimi Kapalanga (Namibía), Opio Móses (Úganda), Owona Joel Charles (Úganda), Bolormaa Baatar (Mongólía), Emily Mutota (Namibía) og Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri. Ljósm. Jón Ragnar Björnsson.

Aðkoma Landgræðslunnar að verkefninu felst í faglegri uppbyggingu á námsframboði og skipulagi, en Landgræðslan býr yfir mikilli reynslu af uppgræðslustarfi og samstarfi við landeigendur og landnotendur og hefur af miklu að miðla á þessum vettvangi.

Nemendur dvelja um 3ja mánaða skeið í höfuðstöðvum Landgræðslunnar í Gunnarsholti og vinna þar að ýmsum sérverkefnum.

Þar fá þeir tækifæri til að kynnast uppgræðslustarfi Landgræðslunnar af eigin raun og taka þátt í faglegu starfi s.s. kortlagningu og rannsóknum. Þá fá þeir einstakt tækifæri til að kynnast samstarfsverkefnum t.d. Bændur Græða Landið, þar sem farið er í vettvangsferðir til bænda til að ræða og fræðast um uppgræðslustarf þeirra.

Nánar um Landgræðsluskólann. Grein í the Namibian.