Sáð og dreift í þúsund hektara

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Snemmsumars lagði Landgræðslan fram aðgerðaáætlun varðandi heftingu öskufoks í nágrenni Eyjafjallajökuls. Var ætlunin að hefta uppfok ösku frá stórum svæðum í byggð með styrkingu gróðurs og sáningu á gróðurlausum svæðum.

 

Nú hefur hluta áætlunarinnar verið hrint í framkvæmd og hefur fræi verið sáð og áburði dreift í ríflega 1.000 ha svæði, m.a. á Sólheimasandi, Skógasandi, Fljótshlíð og innan Merkurbæja.

 

Þessar aðgerðir ættu að leiða til þess að gróðurþekja aukist á lítt gróunum svæðum svo sem á Skóga- og Sólheimasandi. Sá gróður sem fyrir er ætti einnig að verða hávaxnari og þróttmeiri og þar með betur í stakk búinn til að hefta uppfokið á viðkomandi svæðum sem og áfok ofan af Eyjafjallajökli og heiðum þar í kring.

  solheimasandur