Landgræðsla með skógrækt
Fimmtudagur, 22. júlí 2010 11:11
Landgræðsluaðgerðir á Hólasandi héldu áfram af fullum krafti í sumar. Plantað var 50.250 trjáplöntum í sandinn, þar af 36.850 birkiplöntum og 13.400 lerkiplöntum.
-
Einnig var megninu af 10.000 lúpínuplöntum plantað innan um eldri birkiplöntur en afgangurinn fer niður á morgun. Lúpínunni er ætlað að binda jarðveg og virka sem einskonar áburðarverksmiðja fyrir birkið.
-
Ennfremur voru 2000 birkiplöntur settar niður í Ássand.
-
Krakkar frá sumarbúðunum Ástjörn hjálpuðu til við plöntun þessara trjáa og lúpínunnar og fá þau bestu þakkir fyrir framtakið.
-
Trjárækt á Hólasandi hófst upp úr 1990. Af landgræðslusvæðinu eru 1000 ha. lands skilgreindir sem skógræktarsvæði. Skógræktin hefur gengið nokkuð vel og eru hæstu trén nú orðin fögurra metra há.










