Landeyjahöfn tekin í notkun

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Í dag var Landeyjahöfn tekin í notkun með veglegri vígsluhátíð.

 

Þetta samgöngumannvirki mun vafalaust hafa mikil áhrif á mannlífið í Vestmannaeyjum og á "meginlandinu". Verkefnið var flókið og margslungið. Þar á meðal þurfti að tryggja sem best leiðina frá höfninni yfir á þjóðveg 1 við Markarfljótsbrú, en sandfok er oft mikið vandamál á Landeyjasandi. Siglingamálastofnun fékk Landgræðsluna til að græða upp mikið svæði á sandinum til að tryggja umferð sem best um veginn.

 

Nánar segir af hlut Landgræðslunnar í þessu verkefni hérna

 

Landeyjahöfn vígð. Ljósmynd: Sveinn Runólfsson.