Girðingar og uppgræðsla

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Sumarið er tími mikils annríkis hjá Landgræðslunni og sem dæmi eru talsverðar framkvæmdir á vegum héraðsseturs Landgræðslunnar á Húsavík.


Fyrir utan hefðbundin verkefni eins og vorsáningar og áburðardreifingu, sem reyndar er að ljúka, eru tvö stór verk hafin hjá héraðssetrinu. Annars vegar niðurrif landgræðslugirðingar en hins vegar girðing nýs landgræðslusvæðis.


Gerður hefur verið verktakasamningur við ábúendur í Svartárkoti um að rífa niður 16 km. af landgræðslugirðingu við Kráká. Það landgræðslusvæði hefur tekið nægilegum framförum til að teljast sjálfbært og því er ekki þörf á girðingunni lengur. Niðurrif girðingarinnar hófst sl. miðvikudag og ætti verkefninu að ljúka í haust. Það er alltaf fagnaðarefni þegar margra ára vinna ber árangur og landgræðslusvæði „útskrifast“.


Svokallað Norðmelssvæði í Austurfjöllum, meðfram hinum nýja Dettifossvegi, er síðan nýtt landgræðslusvæði. Þar er gífurleg jarðvegseyðing og þegar þannig viðrar gengur sand- og moldrok yfir svæðið og er Dettifossvegur þar ekki undanskilinn.


Vegagerðin mun leggja bundið slitlag á Dettifossveg í sumar. Til þess að bæta frekar aðstæður ferðalanga og koma í veg fyrir skemmdir á farartækjum vegna sandfoks hefur um 2.500 ha. svæði meðfram veginum verið tekið til uppgræðslu og verður 12,5 km. landgræðslugirðing sett upp seinnipartinn í júlí.


Nú þegar hefur verið hafist handa við að bera áburð á Norðmelssvæðið og seinna í sumar verður sáð meðfram veginum til þess að útbúa varnarbelti gegn áfoki. Ennfremur verður heyrúllum dreift á svæðið til þess að styðja við uppgræðsluna.


Þess má geta að héraðssetrið á Húsavík ber ábyrgð á viðhaldi um 370 km. landgræðslugirðinga.

 

nordmel_jadar

nordmel_fok