Aðalfundur Landgræðslufélags Öræfinga

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Elsta landgræðslufélagið, Landgræðslufélags Öræfinga, hélt aðalfund sinn 9. þ.m. Í skýrslu formanns, Arnar Bergssonar, kom fram að megin áhersla hafi verið lögð á uppgræðslu í svokölluðum Skerjum. Þar hafa hundruðir þúsunda lúpínuplantna verið gróðursettar og skapað skjól fyrir um 300 þús. birkiplöntur, sem nú teygja sig upp úr lúpínubreiðunum. Krakkarnir í sveitinni hafa borið hitann og þungann af þessu verkefni. Skerin, sem áður voru grýtt auðn, hafa nú breyst í blómlega gróðurvin.

 

Um 20 manns eru félagar í Landgræðslufélagi Öræfinga. Stjórnin hélt velli og var öll endurkjörin. Hana skipa Örn Bergsson, formaður, Sigurgeir Jónsson, ritari og Sigurður Bjarnason, gjaldkeri.

 

Birkið dafnar vel í skjóli lúpínunnar á Skerjunum í Öræfum. Ljósmynd: Guðmundur Stefánsson.