Stofnun ársins 2010
Föstudagur, 07. maí 2010 20:14
Hver eru viðbrögð þín? Skráðu þau neðan við fréttina.
Könnun var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað fyrr á þessu ári.
Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2010 voru kynntar í dag föstudaginn 7. maí, en þetta er í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins.
Sigurvegarar voru Umferðarstofa í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli í hópi minni stofnana.
Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR, þátttakendur voru m.a. spurðir um:
- trúverðugleika stjórnenda,
- vinnuskilyrði, ímynd, sjálfstæði,
- sveigjanleika,
- ánægju með launakjör og fleira.
Öllum stofnunum ríkisins var gefinn kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélögum þeir væru, gætu tekið þátt og nýttu margar þeirra það. Alls tóku tæplega 200 stofnanir þátt í ár og rúmlega 4000 starfsmenn.
Í hópi stærri stofnana var Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi í öðru sæti og í því þriðja var Landgræðsla ríkisins.

Landgræðslan hefur á sl. árum verið í hópi þeirra stofnana er starfsfólk hefur metið hátt en það er mikils virði fyrir stofnunina að hljóta þessa viðurkenningu núna frá starfsfólki á erfiðleika tímum þegar orðið hefur að grípa til harkalegra aðhaldsaðgerða í rekstri sem óneitanlega hafa bitnað á kjörum starfsfólks.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu SFR.








