Málþing um lífrænan úrgang

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Í dag var haldið málþing á vegum Landgræðslu ríkisins sem bar nafnið „Lífrænn úrgangur til landbóta – óþefur eða auðlind?

Mikill áhugi virðist vera á þessu viðfangsefni, því að um 140 manns, víðs vegar að af landinu, sóttu þingið. Ellefu erindi voru flutt á málþinginu og umræður miklar.

Lífrænn úrgangur er verðmæt en vannýtt auðlind og misskilin. Í honum eru næringarefni og mikið magn lífrænna leifa sem nýtast lífverum í jarðvegi og bæta hann. Eyðing lyktar er viðfangsefni en ekki vandamál sem  þarf að rannsaka. Vinna þarf að því að breyta almenningsálitinu gagnvart lífrænum úrgangi og tryggja sátt samfélagsins um nýtingu hans. Nýting lífræns úrgangs getur sparað kaup á erlendum tilbúnum áburði fyrir hundruð milljóna milljóna króna.

Nánar verður fjallað um ráðstefnuna á vefsíðunni og sett upp spjallsvæði, þar sem hægt verður að ræða málið nánar.

Fundarsalur Landgræðslunnar var þéttskipaður áhugasömum þingfulltrúum/JRB.

Fundarsalur Landgræðslunnar var þéttskipaður áhugasömum þingfulltrúum/JRB.

Yngstu þátttakendurnir voru krakkar úr umhverfisnefnd Hvolsskóla á Hvolsvelli - Þau tóku þátt í umræðunum/JRB.

Yngstu þátttakendurnir voru krakkar úr umhverfisnefnd Hvolsskóla á Hvolsvelli - Þau tóku þátt í umræðunum/JRB.