Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Héraðssetur á Suðurlandi 

Á Suðurlandi er starfrækt héraðssetur í Gunnarsholti og starfsstöðvar í Árnesi og á Höfn þar sem starfsstöð Landgræðslunnar er rekin í samvinnu við Búnaðarsamband Suðurlands. 

Starfsemi Landgræðslunnar á Suðurlandi er rekin sem ein heild og starfssvæðið nær yfir Gullbringu- og Kjósarsýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur- og Austur-Skaftafellssýslur. Á Suðurlandi eru um 170 þátttakendur í verkefninu Bændur græða landið.

Svæðisstjóri á Suðurlandi er Gústav Ásbjörnsson héraðsfulltrúi.

 

Héraðssetur Landgræðslunnar á Suðurlandi er í Gunnarsholti./JRB

 

Héraðssetrið í Gunnarsholti

Starfsvæðið er Gullbringu- og Kjósarsýsla, Sveitarfélagið Ölfus og Hveragerðisbær og Rangárvallarsýsla, auk þess sem Vestur-Skaftafellssýslu er þjónað að stórum hluta frá Gunnarsholti. Héraðsfulltrúar  hafa aðsetur í aðalstöðvum Landgræðslunnar í Gunnarsholti á Rangárvöllum.

Helstu verkefni eru umsjón með framkvæmdum Landgræðslunnar í Ölfusi og á Reykjanesi, í Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellsýslu, ásamt ráðgjöf og leiðbeiningum um landnýtingu og uppgræðslu á svæðinu. Gústav Ásbjörnsson héraðsfulltrúi er einnig verkefnisstjóri af hálfu Landgræðslunnar í verkefninu Gæðastýring í sauðfjárrækt.


 

  • Á Reykjanesi þar sem Landgræðslan annast áburðardreifingu í beitarhólf í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum. 
  • Í sveitarfélaginu Ölfusi þar sem unnið er að uppgræðslu á Hafnarsandi. 
  • Á Hellisheiði og víðar í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur. 
  • Við Tindafell og víðar sunnan Langjökuls í samvinnu við Landsnet. 
  • Í Rangárvallasýslu, þar er unnið í samvinnu við Siglingamálastofnun að  uppgræðslu og heftingu sandfoks á Landeyjasandi vegna byggingar ferjuhafnar og uppgræðslu á Landmannaafrétti og Skógasandi.
  • Í Vestur-Skaftafellssýslu. Þar eru helstu uppgræðsluverkefnin á Mýrdalssandi í samvinnu við Vegagerðina, við Atley í Skaftártungu í samvinnu við Landgræðslufélag Skaftárhrepps og við Hverfisfljót.
  • Í Öræfum í samstarfi við Landgræðslufélag Öræfinga.

       Landgræðslusvæði á Suðurlandi og Reykjanesi

Aðsetur
Landgræðsla ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella.
Sími 488-3000, fax 488-3010

Starfsfólk: Gústav Ásbjörnsson  héraðsfulltrúi, Garðar Þorfinnsson héraðsfulltrúi. 


Starfsstöð í Árnesi

Starfssvæðið er Flóahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Hrunamannahreppur í Árnessýslu. 

Helstu verkefni eru umsjón með framkvæmdum Landgræðslunnar á starfssvæðinu ásamt ráðgjöf um landgræðslustörf og landnýtingu, umsjón með verkefnum í Bændur græða landið á starfssvæðinu og ýmis önnur verkefni.

Sigþrúður Jónsdóttir, héraðsfulltrúi, er einnig verkefnisstjóri í verkefninu Hagar, en markmið þess er að semja aðgengilegt leiðbeiningarit um landlæsi, landmat og sjálfbæra nýtingu úthaga til sauðfjárbeitar.

Helstu landgræðslusvæði eru á Hafinu fremst á Gnúpverjaafrétti.

Aðsetur
Landgræðsla  ríkisins, Félagsheimilinu Árnesi, Gnúpverjahreppi, 801 Selfoss.
Sími 488 3047, fax 486 6091.

Starfsfólk: Sigþrúður Jónsdóttir héraðsfulltrúi. 


Starfsstöð á Höfn
 

Starfssvæðið er Austur-Skaftafellssýsla og austurhluti Vestur-Skaftafellssýslu.  

Helstu verkefni eru umsjón með verkefninu Bændur græða landið á starfssvæðinu, umsjón með verkefnum í vörnum gegn landbroti og almenn  samskipti bændur, aðra landeigendur, félagasamtök og sveitarfélög varðandi uppgræðslustörf. 

Landgræðslusvæði í Skaftafellssýslum.

Aðsetur
Landgræðsla ríkisins, Litlubrú 2, Nýheimum, 780 Höfn.
Sími 470 8088, fax 470 8081.

Starfsfólk: Grétar Már Þorkelsson ráðunautur.