Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Landgræðsla bætir samgöngur 

Landgræðslan og Vegagerðin hafa átt farsælt samstarf um landgræðslu til að verja þjóðveginn yfir Mýrdalssand. Samstarfið hófst árið 1987. Þá voru aðstæður á sandinum erfiðar til uppgræðslu. Sandbylir lokuðu veginum oft, truflun var á umferð og skemmdir á bílum. Með samstarfinu hefur Grettistaki verið lyft í að verja þjóðveg 1 um Mýrdalssand fyrir sandfoki. Það heyrir nú til undantekninga að honum þurfi að loka af þeim sökum.  

Gera má ráð fyrir að kostnaður við framkvæmdir á þessu ári verði um 10 millj. kr., sem skiptist jafnt milli Vegagerðarinnar og Landgræðslunnar.  

Landgræðslan leggur mikla áherslu á sjálfbærni þess gróðurs sem nær fótfestu á sandinum.  

Nær 1800 hektarar hafa verið græddir upp á Mýrdalssandi, en hann er talinn vera um 38.000 ha. Uppgræðsla þessi er fyrst og fremst gríðarlegt byggða- og öryggismál og lýsandi fyrir að landgræðslu er hægt að stunda í margvíslegum tilgangi.

Melgresissáning á Mýrdalssandi, þar sem melgresið víkur fyrir öðrum gróðri, m.a. túnsúru/JRB.