Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Gústav Ásbjörnsson

 

Gústav Ásbjörnssonstarfar sem héraðsfulltrúi Landgræðslunnar á Suðurlandi og hefur umsjón með aðgerðum stofnunarinnar á svæðinu ásamt fleirum. Hann byrjaði sem sumarstarfsmaður árið 2003. Sumarið 2004 var hann fastráðinn til Landgræðslunnar og starfaði þá sem héraðsfulltrúi á Vesturlandi. Vann svo á landupplýsingassviði fram á vor 2005 að hann gerðist héraðsfulltrúi á Austurlandi. „Í öllum þessum tilvikum leysti ég af konur í barnsburðaleyfi“ sagði Gústav. Svo lá leiðin aftur suður, þannig að í ársbyrjun 2006 varð Gústav héraðsfulltrúi á Suðurlandi.  

Hvað gerir héraðsfulltrúi?
-Hann skipuleggur aðgerðir Landgræðslunnar eins og sáningar, áburðardreifingu, verkefnið bændur græða landið og ýmis samstarfsverkefni við aðra. Hann gerir úttektir á verkefnum, sem styrkt eru af  Landbótasjóði, annast gróðureftirlit, t.d. afréttaskoðanir vor og sumar. Haust og vetur fara svo í skráningu og áætlanagerðir. 

Hvar áttu heima, Gústav?
-Bý á Hvolsvelli með eiginkonu minni, Guðnýju Indriðadóttur og Ásbirni Óla, syni okkar sem er fæddur árið 2005.  
 

Ertu Sunnlendingur?
-Nei, ég er Borgfirðingur frá Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum.  

Er gott að búa þar?
Já, alltaf logn og eilíft sumar!  

Helstu áhugamálin þín fyrir utan starfið?
-Það er hestamennska og hrossarækt. Ég spila á gítar og glamra  á nokkur önnur hljóðfæri eins og bassa og trommur. Svo er ég með slæma bíladellu.  

Hvernig lýsir hún sér?
Ég kaupi helst 1-2 bíla á ári.  

Ertu þá að safna bílum?
-Nei, skipti en safna ekki.
-Svo hef ég mikinn áhuga á öllu sem snýr að búskap.  

Hvar lærðir þú?
-Eftir stúdentspróf, sem ég tók í Menntaskólanum á Akureyri, var ég fyrst í Bændadeild á Hvanneyri og hélt svo áfram í Landbúnaðarháskólanum og lauk þar B.Sc. prófi vorið 2003.