Síðast uppfært: Föstudagur, 05. mars 2010 13:06 Föstudagur, 28. nóvember 2008 14:34
Varnir gegn landbroti
Landgræðsla ríkisins hefur það hlutverk skv. lögum um varnir gegn landbroti (lög nr. 91/2002) að draga úr eða koma í veg fyrir landbrot og annað tjón á landi, landkostum eða mannvirkjum með Vörnum gegn landbroti af völdum fallvatna.
Umsóknareyðublað vegna ársins 2010.
Aðgerðir til varnar landbroti
Aðgerðir til að hefta landbrot af völdum vatnsfalla geta verið fólgnar í bakkavörnum, gerð varnargarða, eða öðrum aðgerðum sem fela í sér lagfæringu á rennsli áa eða árfarvegum. Með bakkavörnum er átt við að grjót- og/eða malarfylling er sett við árbakkann til þess að stöðva landbrot. Bakkavarnir hafa oft á tíðum minni áhrif á rennsli áa og eru minna áberandi í umhverfinu en varnargarðar. Varnargarðar geta á hinn bóginn verið nauðsynlegir þar sem ár bera undir sig framburð og flæmast út fyrir farvegi sína.
Framkvæmd varnaraðgerða
Landgræðslan á náið og gott samstarf við Vegagerðina um framkvæmd varna gegn landbroti. Ef varnaraðgerðum er ætlað að verja bæði gróðurlendi og samgöngumannvirki hafa þessar stofnanir skipt með sér kostnaði, en Vegagerðin annast og hefur umsjón með varnaraðgerðum vegna vega, brúa og annarra samgöngumannvirkja á landi. Þar sem vandasamar eða umfangsmiklar fyrirhleðsluframkvæmdir eru fyrirhugaðar á vegum Landgræðslunnar, annast Vegagerðin verkfræðilegan undirbúning, útboð og eftirlit með þeim. Siglingastofnun annast gerð varnargarða gegn ágangi sjávar.

Helstu verkefni
Undanfarin ár hafa verið á fjárlögum 70 - 80 milljónir króna til fyrirhleðsluverkefna á landinu. Aðkallandi verkefni eru við vatnsföll víða um land auk þess sem brýnt er að sinna viðhaldi eldri varnargarða. Ekki er unnt að sinna nema hluta þeirra beiðna sem berast árlega um aðgerðir. Við forgangsröðun verkefna er lögð áhersla á varnaraðgerðir þar sem ræktuðu landi, byggingum eða öðrum mannvirkjum stafar hætta af ágangi vatna. Árlega er unnið að fyrirhleðsluaðgerðum á 40-50 stöðum á landinu, við um 40 vatnsföll. Stærstu verkefnin eru við Markarfljót í Rangárvallasýslu,Héraðsvötn í Skagafirði, Skaftá, Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá í Lóni.
Umsjón með fyrirhleðslum hafa héraðsfulltrúar á viðkomandi svæði.
Árangur aðgerða
Aðgerðir til að draga úr ágangi vatnsfalla eru kostnaðarsamar en víða nauðsynlegar. Varnaraðgerðir á undanförnum árum og áratugum hafa skilað mikilli sjálfgræðslu lands á jökulsáraurum í skjóli varnargarða. Beislun fallvatna skilar því oft verulegum landbótum, auk þess sem það kemur í veg fyrir landeyðingu vegna þeirra.







