Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. júlí 2009 09:12
Aðgengi gagna
Gögn í gagnagrunni Landgræðslunnar eru aðgengileg starfsmönnum, hvar sem þeir eru á landinu gegnum ArcIMS kortaþjónustu á innra neti stofnunarinnar.
ArcIMS og kortagögn Landgræðslunnar eru vistuð á netþjóni sem tengdur er við Internetið. Þegar starfsmaður gerir fyrirspurnir í ArcIMS verða til jpg skjámyndir, sem sendar eru yfir netið. Stærð þeirra fer eftir gluggastærð notandans. Dæmi um notkun ArcIMS kortaþjónustu.
Hvað þarf notandinn til að skoða gögn í ArcIMS?
Tölvu, vafra, netsamband og aðgang að innra neti Landgræðslunnar.
Aðgengi almennings að gögnum Landgræðslunnar
Almenningur hefur nú upplýsingar um 3 gagnasöfn Landgræðslunnar inn á Landlýsingu sem er upplýsingavefur um landfræðileg gögn þar sem nálgast má skrá (lýsigögn (metadata)) yfir stafræn kort, gagnasöfn og aðrar landfræðilegar upplýsingar um Ísland. Gagnasöfn Landgræðslunnar þar eru landgræðslugirðingar, landgræðslusvæði og Jarðvegsrof á Íslandi í mælikvarðanum 1:100 000.








