Síðast uppfært: Þriðjudagur, 27. apríl 2010 15:48 Mánudagur, 24. nóvember 2008 15:23
Landbótasjóður
Landbótasjóður er á vegum Landgræðslu ríkisins. Hún leggur sjóðnum til fé til úthlutunar, auk þess sem aðrir aðilar geta lagt honum til fjármuni.
Landgræðsla ríkisins úthlutar árlega styrkjum úr sjóðnum. Tilgangur þeirra er að færa ábyrgð og framkvæmd landgræðsluverkefna heim í héruð og veita landeigendum, sveitarfélögum, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands, styrki til landbótaverkefna.
Upphæð einstakra styrkja getur numið allt að 2/3 kostnaðar við vinnu, tæki og kaup á aðföngum, en þó ekki meiru en sem nemur 10% þess fjár sem til úthlutunar er hverju sinni.
Árlega er auglýst eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum og við ákvörðun um styrkveitingar er einkum lögð áhersla á eftirfarandi:
- Stöðvun hraðfara jarðvegsrofs og gróðureyðingar
- Endurheimt gróðurs, jarðvegs og votlendis
- Að landnýting verði sjálfbær
- Bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi
Einstök verkefni geta hlotið styrk til allt að fimm ára, enda fylgi umsókn tímasett kostnaðar- og verkáætlun. Við mat umsókna er lögð áhersla á að umsækjandi hafi gert bindandi landbótaáætlun til a.m.k. þriggja ára.
Árið 2008 hlutu 60 umsækjendur styrki að upphæð kr. 100.000 – 1.800.000, samtals að upphæð kr. 26.000.000.
Umsóknareyðublað vegna ársins 2010.
Reglur um úthlutun úr Landbótasjóði









