Úthlutun úr Landbótasjóði 2013
Landgræðslan hefur lokið úthlutun styrkja úr Landbótasjóði árið 2013. Til úthlutunnar voru alls rúmar 33,0 m.kr., þar af leggja Landssamtök sauðfjárbænda fram 5,4 m.kr. samkvæmt samkomulagi sem Landssamtökin og Landgræðslan hafa gert um átak í uppgræðslu illa farinna afréttarlanda þar sem áhersla er lögð á samþættingu beitar og gróðurverndar og sjálfbærni lands.
Ný meistararitgerð - Dýralíf á landgræðslusvæðum
15. maí 2013
Þann 7. maí síðastliðinn varði Brynja Davíðsdóttir meistararitgerð sína við Landbúnaðarháskóla Íslands. Ritgerðin nefnist „The effect of vegetation reclamation on birds and invertebrates. A comparative study of barren land, restored heathland and land revegetated by Nootka lupin“.
Varúðarráðstafanir í Dimmuborgum
13. maí 2013
Dimmuborgir hafa verið i umsjón Landgræðslu ríkisins síðan 1942. Landgræðsla ríkisins hefur unnið metnaðarfullt árangursríkt starf í landgræðslu á svæðinu síðan þá.
Meistararitgerð í landgræðslufræðum
6. maí 2013
Á dögunum varði Magnús Þór Einarsson mastersritgerð sína við Landbúnaðarháskóla Íslands en bar hún nafnið „Áhrif landgræðsluaðgerða á Rangárvöllum á gróðurfar og kolefnisflæði“. Leiðbeinendur ritgerðarinnar voru Bjarni D. Sigurðsson og Guðmundur Halldórsson. Prófdómari var Brynhildur Bjarnadóttir frá Háskólanum á Akureyri.
