Nýr doktor í Uzbekistan
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 13:30
Í byrjun janúar varði Toshpulat Rajabov doktorsritgerð sína við Ríkisháskólann í Uzbekistan. Hún fjallar um gróðufarsbreytingar við mismunandi beitarálag en vandamál vegna ofbeitar hafa aukist eftir að ráðstjórnarríkin liðu undir lok og landið hlaut formlegt sjálfstæði. Þetta væri varla í frásögur færandi ef Rajabov hefði ekki dvalið hluta af námstíma sínum á Íslandi. Hann var einn sex nemenda við Landgræðsluskóla Landgræðslunnar og Landbúnaðarháskóla Íslands, sem nú er orðinn hluti af Háskóla Sameinuðu þjóðanna (http://unulrt.is).
Endurskoðun laga um landgræðslu
Þriðjudagur, 31. janúar 2012 09:13
Nefnd sem umhverfisráðherra skipaði til að undirbúa endurskoðun laga um landgræðslu boðaði til kynningarfundar 26. janúar. Í umræðum kom margt fram, m.a. um nauðsyn þess að gera vörsluskyldu búfjár að meginreglu hér á landi og virkja almenning og félagasamtök betur í landgræðslustarfi. Enn er hægt að koma að hugmyndum að áhersluatriðum vegna þessarar vinnu. Kynningu formanns nefndarinnar, Daða Más Kristófersonar, er að finna hér.Fagráðstefna skógræktar 2012
Föstudagur, 27. janúar 2012 14:05
Fagráðstefna skógræktar verður haldinn 27. – 29. mars nk. á Fosshótelinu Húsavík. Dagskráin verður að einhverju leyti blönduð en ríflega helmingur erinda verður tengt þemanu: Tegundir, kvæmi og klónar í íslenskri skógrækt. Fyrst og fremst verður um nýjar rannsóknarniðurstöður og upplýsingar að ræða. Meðal efnis sem þegar liggur fyrir er erindi um kvæmaval stafafuru, fjallaþins, skógarfuru og sitkagrenis byggt á nýjum mælingum á misjafnlega gömlum kvæmatilraunum. Flutt verður erindi um kynbætur á alaskaösp og skoðuð almenn reynsla af notkun elris á Íslandi.
Fleiri greinar...
Síða 1 af 112







